Ferðahöfn vesturfara – Eyrarbakka
Þjóðbúningafélagi Íslands er boðið að koma og gleðjast með Vestur- Íslendingum sem heimsækja Eyrarbakka 29. ágúst 2025.
Tilefnið er vígsla minningabekks um alla þá Sunnlendinga sem lögðu af stað Vestur um haf frá Íslandi í leit að nýju lífi á árum 1854 -1914. Mörg hundruð manns sigldu frá Eyrarbakkahöfn.
Það er átthagafélagið Icelandic Roots sem á veg og vanda að verkefninu ásamt Sveitarfélaginu Árborg í samstarfi við Byggðasafn Árnesinga.
Icelandic Roots er átthagafélag sem varðveitir ættartengsl, tungumál, og menningararf Íslendinga. Félagið rekur viðamikinn ættfræði gagnagrunn yfir Íslendinga búsettir um víða veröld.
14:00 Vígsla við Byggðasafn Árnesinga | Húsið á Eyrarbakka (ræðuhöld færast inn á Stað ef veður verður ekki gott.)
14:20 Kaffi og kleinur á Stað, Eyrarbakka | Kynning frá Icelandic Roots
15:00 Lokið