Loading Events

« All Events

Þ.Í. Afmæli Þjóðbúningafélagsins

February 21 @ 6:30 pm - 9:00 pm

Kæru félagar í Þjóðbúningafélagi Íslands

Nú er komið að því að gleðjast saman, því félagið okkar fagnar 5 ára afmæli 🥳

Við ætlum að halda upp á þessi tímamót með afmælishátíð laugardagskvöldið 21. febrúar í Fjörukránni – í anda hins fornkveðna: „et, drekk og ver glaður”.

Við mætum í búning, skellum okkur í stemninguna upp úr kl. 18:30, syngjum og dönsum vikivaka langt fram á nótt. Kvöld verður fullt af gleði, hlátri og góðum félagsskap þegar við hittumst enn á ný!

Nauðsynlegt er að skrá sig í gleðina sem engin má missa af fyrir 16. febrúar.
Félagsmenn hafa fengið póst á netfangið sitt,  til að skrá sig í gleðskapinn. 
Hlökkum til að hitta ykkur … og ALLIR MEÐ.
Með kærri kveðju,
Viðburðanefndin

Details

Date:
February 21
Time:
6:30 pm - 9:00 pm