
Jónsmessuhátíð sem Byggðasafn Árnesinga heldur á Eyrarbakka klukkan 13-17.
Félagsmenn Þ.Í. sem mæta í þjóðbúningum fá frían aðgang.
21. júní Jónsmessan á Eyrarbakka
Mikið verður um að vera alla helgina og við hvetjum alla til að mæta.
Við í Þjóðbúningafélaginu erum sérstaklega boðin velkomin og allir sem mæta uppáklæddir fá frítt inn á öll 4 byggðasöfnin.
Dagskráin nær hámarki sínu á laugardeginum 21. júní og því hvetjum við alla til að mæta þann dag.
Það sem verður á dagskránni er m.a. Bollywood dans, Postularnir, opin hús víða um bæinn, skemmtilegt handverk og bílskúrssölur hér og þar… aðallega þar 🙂
Kl 19:30 verður samsöngur í Húsinu og þangað erum við sérstaklega velkomin.
Kl. 20:30 verður Jónsmessubrenna í fjörunni þar sem verður spila og sungið fram á nótt.
Deginum líkur með dansi balli á efstu hæðinni í Rauðahúsinu. Aldurstakmark 20 ár og hóflegur aðgangseyri.
Laugabúð verður opin frá kl. 11, en þangað er gaman að koma. Byggðasafnið opnar öll sín 4 hús kl. 10 og Rauða Húsið opnar fyrir matar- og kaffigesti kl. 12. á hádegi.