Heimsókn í Jólaþorpið í Hafnarfirði
December 12 @ 3:00 pm - 5:00 pm

Jólarölt Þjóðbúningafélagsins um Hafnarfjörð verður laugardaginn 12. desember
- 15:00. Hist verður í Hellisgerði, sem er kjörinn staður fyrir myndatökur. Við röltum um garðinn og þar gefst einnig kostur á að fá sér hressingu í notalegu umhverfi.
Frá Hellisgerði verður gengið niður á Vesturgötu, kíkt í Sívertsen hús, ef það er opið, og síðan í jólaþorpið, þar sem ávallt er líf og fjör og mikil stemming í aðdraganda jóla. Allir hjartanlega velkomnir að vera með okkur í þessari notalegu jólasamveru.