
🎶 17. apríl – Harmonikkuball í Miðgarði 💃🕺
Núna verður hægt að sletta úr klaufunum og skella sér á fjörugt harmonikkuball sem þjóðbúningafélagið Pilsaþytur sendur fyrir í félagsheimilinu Miðgarði í Varmahlíð föstudaginn 17. Apríl frá kl 20:00 til 23:00. Hristum rykið af dansskónum og skellum okkur í skottis, vals og ræl og auðvitað verður dömufrí 💃 Það verður kennsla í boði fyrir þá sem vilja svo nú er bara að mæta og allir eru hjartanlega velkomnir.