Þ.Í. Afmæli Þjóðbúningafélagsins

Kæru félagar í Þjóðbúningafélagi Íslands Nú er komið að því að gleðjast saman, því félagið okkar fagnar 5 ára afmæli 🥳 Við ætlum að halda upp á þessi tímamót með afmælishátíð […]

Harmonikkuball í Miðgarði

🎶   17. apríl - Harmonikkuball í Miðgarði   💃🕺 Núna verður hægt að sletta úr klaufunum og skella sér á fjörugt harmonikkuball sem þjóðbúningafélagið Pilsaþytur sendur fyrir í félagsheimilinu Miðgarði í […]

Svarfdælskur mars, á Húsabakka í Svarfaðardal

Þetta er dansiballið sem beðið er eftir allan veturinn. Svarfdælskur mars verður haldinn laugardagskvöldið 18. apríl á Rimum í Svarfaðardal frá kl. 20. Inga Magga leiðbeinir þeim sem ekki kunna […]

Þjóðbúningamessa Rangárþing Eystra

Þjóðbúningamessa verður í Krosskirkju í Austur Landeyjum, sunnudaginn 19. apríl  kl. 10:00. Prestur er Sr. Kristján Arason og organisti er Guðjón Halldór Óskarsson. Eftir messu mun kvenfélagið Freyja bjóða til […]

Sumardagurinn fyrsti, Þjóðbúningamessa á Bíldudal

Fögnum komu sumars í þjóðbúningamessu kl. 14:00 á sumardaginn fyrsta í fallegu kirkjunni á Bíldudal sem í ár fagnar 120 ára vígsluafmæli. Prestur verður Sr. Bryndís Svavarsdóttir. Að lokinni messu […]

Uppstigningardagur “Senn fer vorið á vængjum yfir sæinn”

Byggðasafn Árnesinga á Eyrarbakka og Þjóðbúningafélag Íslands bjóða upp á glaum og gleði á „Bakkanum“ á uppstigningardag. Í boði verða glæsilegar sýningar í öllum safnahúsum og hápunkturinn verður skrúðganga safnbílanna […]

Þjóðbúningamessa í Minjasafnskirkjunni á Akureyri

Á uppstigningardag, þann 14. maí kl. 14:00, verður haldin hátíðleg þjóðbúningamessa í Minjasafnskirkjunni. Í ár er þeim merku tímamótum fagnað, að 180 ár eru liðin frá því að Þorsteinn Daníelsson […]

Þ.Í. Aðalfundur Þjóðbúningafélags Íslands

Aðalfundinn fimmtudaginn 28. maí. Fundurinn verður haldinn kl. 18:00 á annari hæð á  A. Hansen á Vesturgötu 4, Hafnarfirði. Að loknum fundi verður hátíðarkvöldverður á  A. Hansen. Félagsmenn fá tölvupóst […]

Vesturfararsetrið á Hofsósi 30 ára

Vesturfararsetrið á Hofsósi var stofnað árið 1996 og fagnar því 30 ára starfsafmæli á þessu ári. Það var stofnað til heiðurs þeim Íslendingum sem fluttust til Norður-Ameríku á árunum 1850–1914. […]