
Kæru félagar í Þjóðbúningafélagi Íslands
Nú er komið að því að gleðjast saman, því félagið okkar fagnar 5 ára afmæli 🥳
Við ætlum að halda upp á þessi tímamót með afmælishátíð laugardagskvöldið 21. febrúar í Fjörukránni – í anda hins fornkveðna: „et, drekk og ver glaður”.
Við mætum í búning, skellum okkur í stemninguna upp úr kl. 18:30, syngjum og dönsum vikivaka langt fram á nótt. Kvöld verður fullt af gleði, hlátri og góðum félagsskap þegar við hittumst enn á ný!