
Kæru félagar í Þjóðbúningafélagi Íslands
Okkur hefur verið boðið að vera með tískusýningu á hinu glæsilega Þorrablóti á Hrafnistu í Hafnarfirði. Þorrablótið er fyrir bæði heimilsfólkið og nánustu aðstendur þeirra.
Við verðum með örstutta kynningu á félaginu, göngum um salinn og í lokin verður tónlistaratriði frá einum úr hópnum.
🗓 Dagsetning: Fimmtudagur 29. janúar
⏰ Tími: 18:30
📍 Staður: Hrafnista, Hraunvangur 7, Hafnarfjörður
(Yfirhafnir og eigur má geyma í herbergi dagvistunar – til hægri og svo fyrstu dyr til vinstri.)
Við í viðburðanefnd vonum að sem flestir geti mætt og tekið þátt í þessari skemmtilegu heimsókn.
Með kærri kveðju
Viðburðanefndin