Þjóðbúningamessa verður haldin í Bíldudalskirkju á Sumardaginn fyrsta 25 apríl kl. 14.00.
Séra Agnes M.Sigurðardóttir biskup Íslands predikar. Konur úr þjóðbúningafélaginu Auði taka þátt í þjónustunni. Fjölmennum í fallegu búningunum okkar og gaman væri að sjá búninga allsstaðar að úr heiminum. Kaffi í Muggstofu að messu lokinni.