Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Þjóðlagahópur Tónlistarskóla Kópavogs mun halda þjóðlagaviðburð á Árbæjarsafni laugardaginn 23. maí kl. 14.00.

May 23 @ 2:00 pm - 5:00 pm

Hópurinn sem er skipaður 10 nemendum Tónlistarskóla Kópavogs leikur íslenska þjóðlagadagskrá, með hljóðfæraleik og söng, þar sem áheyrendur kynnast því hvað mikil gleði getur fylgt flutningi þjóðlagatónlistar okkar, ólíkt því sem margir halda.

Hópurinn kemur fram í íslenskum þjóðbúningum.

Þjóðlagahópur Tónlistarskóla Kópavogs hefur æft íslenska þjóðlagatónlist saman um tveggja ára skeið. Hópurinn er nú að undirbúa ferð til Prag þar sem þau munu m.a. taka þátt í þjóðlagahátíð þar sem þau kynnast fjörinu sem fylgir tékkneskri þjóðlagatónlist og kynna okkar þjóðlagatónlist fyrir öðrum. Það er hópnum sönn ánægja að flytja tónlistina fyrir gesti Árbæjarsafns.

Details

  • Date: May 23
  • Time:
    2:00 pm - 5:00 pm