Jónsmessuhátíð á Eyrabakka
June 27

Þann 27. júní verður Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka með fjölbreyttum og skemmtilegum viðburðum.
Við viljum vekja sérstaka athygli á því að Byggðasafn Árnesinga býður Þjóðbúningafélag Íslands sérstaklega velkomið og gefst okkur þar einstakt tækifæri til að taka þátt í dagskrá safnsins. Nánari upplýsingar um viðburði verða kynntar þegar nær dregur.
Eitt er víst — þetta verður bæði fjörugur og eftirminnilegur dagur, enda eiga margir enn góðar minningar frá gleðinni og stemningunni í fyrra.