Loading Events

« All Events

Þ.Í. – Þjóðbúningahátíð á Ísafirði og Hrafnseyri

August 14 @ 8:00 am - August 16 @ 5:00 pm

14.-16. ágúst – Þjóðbúningahátíð á Ísafirði og Hrafnseyri

Fram undan er hátíð sem er öllum opin og ætti enginn að láta fram hjá sér fara.

Helgina 14.–16. ágúst verður haldin tveggja daga þjóðbúningahátíð á Ísafirði og Hrafnseyri, í samstarfi við Þjóðbúningafélagið Auði í Vesturbyggð og Þjóðbúningafélag Vestfjarða. Aðrir samstarfsaðilar verða Annríki, þjóðbúningar og skart ásamt Þjóðbúningafélagi Íslands.

Hátíðin verður formlega sett í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Þar verður boðið upp á vönduð fræðsluerindi, sýning á þjóðbúningum ásamt handverki.

Auk þess verða til sölu fallegir minjagripir sem tengjast hátíðinni.

Dagskrá verður kynnt síðar, en við hvetjum alla til að taka helgina frá og fjölmenna vestur.

Details

  • Start: August 14 @ 8:00 am
  • End: August 16 @ 5:00 pm