Þ.Í. Aðalfundur Þjóðbúningafélags Íslands

Aðalfundinn fimmtudaginn 28. maí. Fundurinn verður haldinn kl. 18:00 á annari hæð á  A. Hansen á Vesturgötu 4, Hafnarfirði. Að loknum fundi verður hátíðarkvöldverður á  A. Hansen. Félagsmenn fá tölvupóst þegar nær dregur, þar sem nauðsynlegt er að skrá sig í kvöldverðinn.

Vesturfararsetrið á Hofsósi 30 ára

Vesturfararsetrið á Hofsósi var stofnað árið 1996 og fagnar því 30 ára starfsafmæli á þessu ári. Það var stofnað til heiðurs þeim Íslendingum sem fluttust til Norður-Ameríku á árunum 1850–1914. Markmið setursins er að varðveita og miðla sögu þeirra sem héldu af landi brott og efla tengsl milli afkomenda hérlendis og í Vesturheimi. Glæsilegar sýningar […]

Þ.Í. – Þjóðbúningahátíð á Ísafirði og Hrafnseyri

14.-16. ágúst - Þjóðbúningahátíð á Ísafirði og Hrafnseyri Fram undan er hátíð sem er öllum opin og ætti enginn að láta fram hjá sér fara. Helgina 14.–16. ágúst verður haldin tveggja daga þjóðbúningahátíð á Ísafirði og Hrafnseyri, í samstarfi við Þjóðbúningafélagið Auði í Vesturbyggð og Þjóðbúningafélag Vestfjarða. Aðrir samstarfsaðilar verða Annríki, þjóðbúningar og skart ásamt Þjóðbúningafélagi […]

Hólahátíð

Þjóðbúningamessa verður haldin í tengslum við Hólahátíð, sunnudaginn 16. ágúst. Þar mun samvera, hefðir og hátíðleiki mætast í fallegu umhverfi. Messan er kærkomið tækifæri til að heiðra íslenska menningararfleifð. Allir eru hjartanlega velkomnir og þátttaka hvers og eins skapar hátíðina.

Menningarvaka eldri borgara í Seljakirkju

Menningarvaka eldri borgara í Seljakirkju Félaginu er boðið að taka þátt í Menningarvöku eldri borgara í Seljakirkju, þriðjudaginn 29. september kl. 18:30. Þjóðbúningafélagið stefnir á að bjóða upp á fróðleik í bland við „tískusýningu“ Staðsetning:         Hagaseli 40, Reykjavík

Kátir voru karlar á kútter Haraldi….

tilefni þess að 130 ár eru liðin frá vígslu Akraneskirkju verður haldin hátíðleg þjóðbúningamessa sunnudaginn 11. október kl. 13:00 Að messu lokinni verður farið í Byggðasafnið að Görðum þar sem gestum verður boðið upp á leiðsögn um safnið. Í lok dags verður boðið upp á kaffi & kleinur gegn vægu gjaldi í Stúkuhúsi.