Þjóðbúningamessa í Minjasafnskirkjunni á Akureyri

Á uppstigningardag, þann 14. maí kl. 14:00, verður haldin hátíðleg þjóðbúningamessa í Minjasafnskirkjunni. Í ár er þeim merku tímamótum fagnað, að 180 ár eru liðin frá því að Þorsteinn Daníelsson frá Skipalóni lauk smíði kirkjunnar, árið 1846 og er því ein af elstu timburkirkjum Íslands. Að lokinni messu verður í boði kaffi og meðlæti í […]

Þ.Í. Aðalfundur Þjóðbúningafélags Íslands

Aðalfundinn fimmtudaginn 28. maí. Fundurinn verður haldinn kl. 18:00 á annari hæð á  A. Hansen á Vesturgötu 4, Hafnarfirði. Að loknum fundi verður hátíðarkvöldverður á  A. Hansen. Félagsmenn fá tölvupóst þegar nær dregur, þar sem nauðsynlegt er að skrá sig í kvöldverðinn.

Vesturfararsetrið á Hofsósi 30 ára

Vesturfararsetrið á Hofsósi var stofnað árið 1996 og fagnar því 30 ára starfsafmæli á þessu ári. Það var stofnað til heiðurs þeim Íslendingum sem fluttust til Norður-Ameríku á árunum 1850–1914. Markmið setursins er að varðveita og miðla sögu þeirra sem héldu af landi brott og efla tengsl milli afkomenda hérlendis og í Vesturheimi. Glæsilegar sýningar […]

Þ.Í. – Þjóðbúningahátíð á Ísafirði og Hrafnseyri

14.-16. ágúst - Þjóðbúningahátíð á Ísafirði og Hrafnseyri Fram undan er hátíð sem er öllum opin og ætti enginn að láta fram hjá sér fara. Helgina 14.–16. ágúst verður haldin tveggja daga þjóðbúningahátíð á Ísafirði og Hrafnseyri, í samstarfi við Þjóðbúningafélagið Auði í Vesturbyggð og Þjóðbúningafélag Vestfjarða. Aðrir samstarfsaðilar verða Annríki, þjóðbúningar og skart ásamt Þjóðbúningafélagi […]

Hólahátíð

Þjóðbúningamessa verður haldin í tengslum við Hólahátíð, sunnudaginn 16. ágúst. Þar mun samvera, hefðir og hátíðleiki mætast í fallegu umhverfi. Messan er kærkomið tækifæri til að heiðra íslenska menningararfleifð. Allir eru hjartanlega velkomnir og þátttaka hvers og eins skapar hátíðina.

Menningarvaka eldri borgara í Seljakirkju

Menningarvaka eldri borgara í Seljakirkju Félaginu er boðið að taka þátt í Menningarvöku eldri borgara í Seljakirkju, þriðjudaginn 29. september kl. 18:30. Þjóðbúningafélagið stefnir á að bjóða upp á fróðleik í bland við „tískusýningu“ Staðsetning:         Hagaseli 40, Reykjavík