Uppstigningardagur “Senn fer vorið á vængjum yfir sæinn”
Byggðasafn Árnesinga á Eyrarbakka og Þjóðbúningafélag Íslands bjóða upp á glaum og gleði á „Bakkanum“ á uppstigningardag. Í boði verða glæsilegar sýningar í öllum safnahúsum og hápunkturinn verður skrúðganga safnbílanna ásamt öllum gestum, nokkuð sem enginn vill missa af. Allir hjartanlega velkomnir. Nánari upplýsingar koma inn síðar.