Þ.Í. Félagsfundur, 17. janúar´26

Félagsfundinn 17. janúar 2026. Viðburða- og Ferðanefnd vill hefja nýtt ár með því að efla þátttöku félagsmanna í mótun félagsstarfsins. Könnun var send út 30. des sl. og góð svör hafa borist. Laugardaginn 17. janúar verður félagsfundur kl. 11–13 í Annríki þar gefst kostur á að ræða og móta félagsstarfið fyrir árið 2026. Hvetjum alla […]

Þ.Í. Þorrablót Hrafnistu í Hafnafirði.

Kæru félagar í Þjóðbúningafélagi Íslands Okkur hefur verið boðið að vera með tískusýningu á hinu glæsilega Þorrablóti á Hrafnistu í Hafnarfirði. Þorrablótið er fyrir bæði heimilsfólkið og nánustu aðstendur þeirra. Við verðum með örstutta kynningu á félaginu, göngum um salinn og í lokin verður tónlistaratriði frá einum úr hópnum. 🗓 Dagsetning: Fimmtudagur 29. janúar ⏰ […]

Þ.Í. Afmæli Þjóðbúningafélagsins

Kæru félagar í Þjóðbúningafélagi Íslands Nú er komið að því að gleðjast saman, því félagið okkar fagnar 5 ára afmæli 🥳 Við ætlum að halda upp á þessi tímamót með afmælishátíð laugardagskvöldið 21. febrúar í Fjörukránni – í anda hins fornkveðna: „et, drekk og ver glaður". Við mætum í búning, skellum okkur í stemninguna upp úr […]

21. mars – Heimsókn til Birnu Huldar og í Duus Safnahús

mars - Heimsókn til Birnu Huldar og í Duus Safnahús Heimsókn félgasmanna hefst kl. 13:00 á Saumastofu Birnu Huldar, í Keflavík. Birna Huld býður upp á almenna saumaþjónustu og við bendum á þessar upplýsingar:  https://www.facebook.com/profile.php?id=100063770521445. Eftir heimsóknina til Birnu Huldar verður farið í Duus Safnahús og skoðuð sýningin um Ástu Kristínu Árnadóttur, eða Ástu málara, […]

Harmonikkuball í Miðgarði

🎶   17. apríl - Harmonikkuball í Miðgarði   💃🕺 Núna verður hægt að sletta úr klaufunum og skella sér á fjörugt harmonikkuball sem þjóðbúningafélagið Pilsaþytur sendur fyrir í félagsheimilinu Miðgarði í Varmahlíð föstudaginn 17. Apríl frá kl 20:00 til 23:00. Hristum rykið af dansskónum og skellum okkur í skottis, vals og ræl og auðvitað verður dömufrí […]

Svarfdælskur mars, á Húsabakka í Svarfaðardal

Þetta er dansiballið sem beðið er eftir allan veturinn. Svarfdælskur mars verður haldinn laugardagskvöldið 18. apríl á Rimum í Svarfaðardal frá kl. 20. Inga Magga leiðbeinir þeim sem ekki kunna sporin af sinni alkönnu snilld. Stulli og Tóti leika fyrir dansi og sjá til þess að dansskórnir fá enga hvíld. Sláðu til og taktu þátt […]

Þjóðbúningamessa Rangárþing Eystra

Þjóðbúningamessa verður í Krosskirkju í Austur Landeyjum, sunnudaginn 19. apríl  kl. 10:00. Prestur er Sr. Kristján Arason og organisti er Guðjón Halldór Óskarsson. Eftir messu mun kvenfélagið Freyja bjóða til kaffi og meðlæti í félagsheimilinu Gunnarshólma í Austur Landeyjum, gegn vægu gjaldi.  Allir hjartanlega velkomnir, og hvetjum fólk sem á þjóðbúninga til að koma í […]

Sumardagurinn fyrsti, Þjóðbúningamessa á Bíldudal

Fögnum komu sumars í þjóðbúningamessu kl. 14:00 á sumardaginn fyrsta í fallegu kirkjunni á Bíldudal sem í ár fagnar 120 ára vígsluafmæli. Prestur verður Sr. Bryndís Svavarsdóttir. Að lokinni messu býður safnaðarnefndin til kaffisamsætis.

Uppstigningardagur “Senn fer vorið á vængjum yfir sæinn”

Byggðasafn Árnesinga á Eyrarbakka og Þjóðbúningafélag Íslands bjóða upp á glaum og gleði á „Bakkanum“ á uppstigningardag. Í boði verða glæsilegar sýningar í öllum safnahúsum og hápunkturinn verður skrúðganga safnbílanna ásamt öllum gestum, nokkuð sem enginn vill missa af. Allir hjartanlega velkomnir. Nánari upplýsingar koma inn síðar.

Þjóðbúningamessa í Minjasafnskirkjunni á Akureyri

Á uppstigningardag, þann 14. maí kl. 14:00, verður haldin hátíðleg þjóðbúningamessa í Minjasafnskirkjunni. Í ár er þeim merku tímamótum fagnað, að 180 ár eru liðin frá því að Þorsteinn Daníelsson frá Skipalóni lauk smíði kirkjunnar, árið 1846 og er því ein af elstu timburkirkjum Íslands. Að lokinni messu verður í boði kaffi og meðlæti í […]

Þ.Í. Aðalfundur Þjóðbúningafélags Íslands

Aðalfundinn fimmtudaginn 28. maí. Fundurinn verður haldinn kl. 18:00 á annari hæð á  A. Hansen á Vesturgötu 4, Hafnarfirði. Að loknum fundi verður hátíðarkvöldverður á  A. Hansen. Félagsmenn fá tölvupóst þegar nær dregur, þar sem nauðsynlegt er að skrá sig í kvöldverðinn.