Þ.Í. Fjallkonuhátíð í Skagafirði/Hátíðarhöld.

7. og 8. september 2024 Dagana 7. og 8. september 2024 fer fram Fjallkonuhátíð í Skagafirði. Fjölbreytt dagskrá með áhugaverðum erindum um baðstofulíf og búningaþróun á 19 öld, þjóðbúningasýningu, þjóðbúningamessu, kynnisferð um sögustaði, heimsókn í Glaumbæ, myndatökum og söng. Fjallkonuhátíðin er haldin í tilefni 80 ára afmælis íslenska lýðveldisins. Hún er tileinkuð þremur einstaklingum sem […]

2. sunnudagur í aðventu, velkomin í Dómkirkjuna í Reykjavík

2. sunnudagur í aðventu, velkomin í Dómkirkjuna í Reykjavík Í samvinnu við Dómkirkjuna í Reykjavík verður þjóðbúningamessa 2. sunnudag í aðventu,  þann 8. des. nk. og hefst athöfnin klukkan 11:00. Eftir messu væri gaman, ef veður leyfir að ganga saman og njóta þess sem miðbær Reykjavíkur hefur uppá að bjóða. Vonumst til að sjá ykkur […]

Þjóðbúningamessa í kirkju óháða Safnaðarins

Þjóðbúningamessan er  sunnudaginn 27. apríl kl. 14:00 í Kirkju Óháða Safnaðarins Háteigsvegi 56 Rvk. Það verður lítið um sálmasöng en sungin ættjarðalög af Sönghópnum á kirkjuloftinu. Eftir Þjóðbúningamessuna býður Sönghópurinn á kirkjuloftinu  upp á kaffisopa og bakkelsi. Þjóðbúningamessan er kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja njóta þess að skarta fallega þjóðbúningnum sínum. Að sjálfsögðu eru allir […]

Þjóðbúningamessa Rangárþing Eystra

Þjóðbúningamessa verður í Breiðabólstaðakirkju í Fljótshlíð, sunnudaginn 4.maí kl. 11:00. Prestur er Sr. Kristján Arason og organisti er Guðjón Halldór Óskarsson. Eftir messu mun kvenfélagið Eining bjóða til kaffi og meðlæti í félagsheimilinu Hvolnum á Hvolsvelli gegn vægu gjaldi.  Allir hjartanlega velkomnir, og hvetjum fólk sem á þjóðbúninga til að koma í þeim til messu.

Söguganga klukkan 11:00-12:30 á Þingvöllum

15. júní Söguganga klukkan 11:00-12:30 á Þingvöllum Gengið verður frá Hakinu á Þingvöllum og niður á Lögberg með Guðna Th. fyrrum forseta okkar. Verður örugglega fróðlegt og gaman væri að mæta vel klædd :-) Klukkan 13-16 Verður sungið í Almannagjá. Fjórir kórar skiptast á að syngja á Lögbergi. Frá klukkan 17:30 verður tónafluttningur á sviðinu […]

Þjóðhátíðardagur Íslendinga, skrúðganga þjóbúningafólks í Hafnarfirði.

  Þjóðhátíðardagur Íslendinga, skrúðganga þjóbúningafólks í Hafnarfirði. Hildur íAnnríki sér um að setja upp skautfald Fjallkonunnar. Sýning Annríkis í Hafnarborg á þjóðbúningum á þjóðhátíðardaginn. Félagsmenn og aðrir Íslendingar hvattir til að klæðast þjóðbúningum á Þjóðhátíðardaginn. Annríki verður með stórkostlega þjóðbúningasýningu klukkan 13:00-17:00 á jarðhæðinni í Hafnarborg að Strandgötu 34 Klukkan 15:00 er ljósmyndataka við litlu […]

Þjóðhátíðardagurinn í Glaumbæ

Í tilefni af 17. júní verður hátíðarkaffihlaðborð í Áshúsi kl. 12-16 með ýmsum kræsingum. Frír aðgangur er á safnsvæðið fyrir þau sem mæta í íslenskum þjóðbúning. Minnum fólk á ársmiðana, en með þeim þarf aðeins að greiða aðgangseyrinn að safnsvæðinu í eitt skipti og gildir miðinn þá í heilt ár upp frá því og þá […]