Kæru félagsmenn,

Áramót 2025–2026
Bréf þetta er sent til upplýsingar um starfsemi félagsins undanfarin tvö ár. Þjóðbúningafélag Íslands var stofnað í febrúar 2021 og merki félagsins er Lífsins blóm. Félagið stendur árlega fyrir fjölbreyttum og skemmtilegum viðburðum. Þeir eru kynntir á heimasíðu félagsins, https://thjodbuningur.is sem og á Facebook-síðu félagsins. Við hvetjum alla félagsmenn til að fylgjast vel með, þar sem nýir viðburðir og upplýsingar eru birtar reglulega.
Af annars mörgum góðum viðburðum nefnum við þrjá glæsilega viðburði félagsins sem samræmast markmiðum félagsins sem er;

gr. samþykkta félagsins, er að stuðla að skipulagningu viðburða þar sem nýting þjóðbúninga á sér stað.

26.–31. júlí 2024 Þjóðbúningaferð til Færeyja
Farið var í þjóðbúningaferð til Færeyja sem skipulögð var í samstarfi við Annríki. Félagsmenn tóku á eftirminnilegan hátt í Ólavsvökunni. Fulltrúar félagsins voru hluti af hátíðardagskránni og kynntu íslenska þjóðbúninga fyrir gestum og heimafólki.

7.–8. september 2024 Fjallkonuhátíð í Skagafirði
Glæsileg Fjallkonuhátíð var haldin 7. október í Varmahlíð í Skagafirði. Daginn eftir, 8. október, hófst dagskráin í Hólakirkju og síðan var farið í rútu með leiðsögn um söguslóðir í Skagafirði.
Hátíðin var tileinkuð þremur einstaklingum úr Skagafirði sem settu mark sitt á þróun íslenskra kvenbúninga á 19. öld.
Samstarfsaðilar voru Pilsaþytur í Skagafirði, Annríki og Þjóðbúningafélag Íslands

11.–12. október 2025 – Þjóðbúningar og skart á Selfossi og Eyrarbakka
Þjóðbúningafélag Íslands hélt hátíðina Þjóðbúningar og skart á Selfossi og Eyrarbakka, í samstarfi við Byggðasafn Árborgar, Sveitarfélagið Árborg og Annríki.

október – Selfoss
Á Selfossi var boðið upp á fræðandi fyrirlestra og þjóðbúningasýningu. Jafnframt gafst gestum í fyrsta sinn kostur á að skoða og kaupa ýmsar vörur tengdar þjóðbúningum.

október – Eyrarbakki
Hátíðin hófst í húsi Byggðasafns Árnesinga með fræðsluerindi. Að því loknu var gengið í skrúðgöngu, með bílakosti safnsins í fararbroddi, yfir í Sjóminjasafnið. Þar var boðið upp á stutt spjall um silfursjóð safnsins.
Að lokinni dagskrá bauð Þjóðbúningafélagið gestum upp á kaffi og meðlæti í Húsinu.

Að lokum kæru félagar, viljum við kveðja ykkur með ljóðlínum eftir Káinn.

Hér er margt af heiðursmönnum,
hópur sveina og fríðra meyja.
Allir vonast eftir góðu,
eitthvað má ég segja.

( Káinn: Kristján Níels Jónsson )

Með vinsemd og virðingu,
F.h. Þjóðbúningafélags Íslands
Viðburða og ferðanefnd

Eyrún – Hildur – Steinunn