BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Þjóðbúningafélag Íslands - ECPv6.15.17.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Þjóðbúningafélag Íslands
X-ORIGINAL-URL:https://thjodbuningur.is
X-WR-CALDESC:Events for Þjóðbúningafélag Íslands
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20241201
DTEND;VALUE=DATE:20241202
DTSTAMP:20260604T203247
CREATED:20240405T183743Z
LAST-MODIFIED:20241119T094908Z
UID:322-1733011200-1733097599@thjodbuningur.is
SUMMARY:Þ.Í. Þjóðbúningamessa Hafnafjarðarkirkju ásamt útskrift haustnámskeið nemenda.
DESCRIPTION:Þ.Í. 1. desember Þjóðbúningamessa í Hafnarfjarðarkirkju. kl. 11.00 \n\nÚtskrift nemenda á haustnámskeiði Annríkis í safnaðarheimilinu að loknu messuhaldi. Boðið verður uppá veitingar. \nHvetjum fólk til að mæta í þjóðbúningum. \n Allir velkomnir
URL:https://thjodbuningur.is/vidburdur/th-i-thjodbuningamessa-hafnafjardarkirkju/
ORGANIZER;CN="%C3%9Ej%C3%B3%C3%B0b%C3%BAningaf%C3%A9lag %C3%8Dslands":MAILTO:postur@thjodbuningur.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240910
DTEND;VALUE=DATE:20240911
DTSTAMP:20260604T203247
CREATED:20240405T183631Z
LAST-MODIFIED:20240405T183631Z
UID:320-1725926400-1726012799@thjodbuningur.is
SUMMARY:Námskeið í þjóðbúningasaumi haustönn hefst í Annríki í Hafnarfirði.
DESCRIPTION:Námskeið í þjóðbúningasaumi haustönn hefst í Annríki í Hafnarfirði.
URL:https://thjodbuningur.is/vidburdur/namskeid-i-thjodbuningasaumi-haustonn-hefst-i-annriki-i-hafnarfirdi/
ORGANIZER;CN="%C3%9Ej%C3%B3%C3%B0b%C3%BAningaf%C3%A9lag %C3%8Dslands":MAILTO:postur@thjodbuningur.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240907
DTEND;VALUE=DATE:20240909
DTSTAMP:20260604T203247
CREATED:20240405T183512Z
LAST-MODIFIED:20240903T112748Z
UID:318-1725667200-1725839999@thjodbuningur.is
SUMMARY:Þ.Í. Fjallkonuhátíð í Skagafirði/Hátíðarhöld.
DESCRIPTION:7. og 8. september 2024\nDagana 7. og 8. september 2024 fer fram Fjallkonuhátíð í Skagafirði. Fjölbreytt dagskrá með áhugaverðum erindum um baðstofulíf og búningaþróun á 19 öld\, þjóðbúningasýningu\, þjóðbúningamessu\, kynnisferð um sögustaði\, heimsókn í Glaumbæ\, myndatökum og söng. \nFjallkonuhátíðin er haldin í tilefni 80 ára afmælis íslenska lýðveldisins. Hún er tileinkuð þremur einstaklingum sem settu mark sitt á þróun íslenskra kvenbúninga á 19. öld. Sigurður „málari“ Guðmundsson\, frá Hellulandi í Hegranesi var þjóðernisrómantíker sem unni fögru handverki. Undir áhrifum gömlu faldbúninganna fór Sigurður að leita heimilda um búninga og handverk. Hann skráði m.a. frásögn um einstakan faldbúning sem Guðrún Skúladóttir frá Ökrum saumaði og seldur var til Englands 1809. Í samstarfi við konur lagði hann til breytta útgáfu af faldbúningi\, skautbúning\, táknmynd íslensks þjóðernis. Samstarfskona Sigurðar í Skagafirði Sigurlaug Gunnarsdóttir frá Ási í Hegranesi saumaði skautbúning eftir fyrirmynd Sigurðar\, þann elsta sem varðveist hefur. Fyrir áhuga Sigurðar og hvatningu þróuðust kvenbúningarnir inn í nýjan tíðaranda 19. aldar. Skautbúningurinn fékk hlutverk í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga\, þjóðbúningur borinn af stoltum konum sem Sigurður hvatti til dáða er hann sagði: „af yðar mynd er Ísland kallað „fjallkonan fríð““. \nDagskrá laugardagsins fer fram í Miðgarði\, Varmahlíð og er öllum opin og ókeypis. \nDagskrá sunnudags hefst með messu að Hólum í Hjaltadal. Eftir það verður farin rútuferð um sögustaði í Skagafirði. Skráning í ferðina og verð 4000. \nAllir velkomnir og gestir eru hvattir til að mæta í þjóðbúningum báða dagana. \nAð hátíðinni standa Þjóðbúningafélag Íslands\, Pilsaþytur í Skagafirði og Annríki – Þjóðbúningar og skart. Sveitarfélagið Skagafjörður\, Kaupfélag Skagfirðinga og Byggðasafn Skagafjarðar styrkja hátíðina og hafi bestu þakkir fyrir. \n\n\n\nDagskrá Fjallkonuhátíðar – gestir hvattir til að mæta í þjóðbúningum \nLaugardagur 7. september – Miðgarður í Varmahlíð – frítt inn  \n  \n\n– 17.00 Þjóðbúningasýning – opið allan daginn\n\n13.00             Fjallkonuhátíð sett með ávarpi forystukvenna í Pilsaþyt og Þjóðbúningafélagi Íslands \n13.20             Lífið í baðstofunni \nBerglind Þorsteinsdóttir\, safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga \nUmræður og söngur \n14.00             Kaffi \n14.30             Konur „af yðar mynd er Ísland kallað „fjallkonan fríð““. \nGuðrún Hildur Rosenkjær\, klæðskeri og sagnfræðingur \nÞjóðbúningkynning með þátttöku búningaklæddra gesta \nUmræður og söngur \n15.45             Þjóðbúningamyndataka \n16.00             Þjóðbúningasýning skoðuð \n17.00             Fjallkonuhátíð lokið á laugardegi \nSunnudagur 8. september 2024 – þjóðbúningamyndataka á sögustöðum \n13-18.00       Þjóðbúningasýning í Miðgarði opin \n11.00             Hólakirkja – Séra Halla Stefánsdóttir messar \n12.30             Léttar veitingar á Hólum – hver og einn greiðir fyrir sig \n14.00             Rútuferð um sögustaði í Skagafirði\, fararstjórar Kristín Sigurrós Einarsdóttir og Níels Ómarsson. Komið við á Ökrum þar sem Guðrún Skúladóttir bjó. Ekið um Hegranes þar sem Sigurður málari og Sigurlaug Gunnarsdóttir bjuggu. Byggðasafnið í Glaumbæ heimsótt – frítt inn \nHámarksfjöldi 60 manns. Verð 4000                                                     Skráning: pilsathytur@gmail.com \n17.00             Komið til baka að Hólum – Fjallkonuhátíð lokið – Bestu þakkir
URL:https://thjodbuningur.is/vidburdur/th-i-hatidarhold-skagafirdi/
ORGANIZER;CN="%C3%9Ej%C3%B3%C3%B0b%C3%BAningaf%C3%A9lag %C3%8Dslands":MAILTO:postur@thjodbuningur.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240726T080000
DTEND;TZID=UTC:20240731T170000
DTSTAMP:20260604T203247
CREATED:20240219T185448Z
LAST-MODIFIED:20240219T185542Z
UID:111-1721980800-1722445200@thjodbuningur.is
SUMMARY:Þjóðbúningaferð á Ólafsvöku
DESCRIPTION:Þjóðbúningafélag Íslands (Þ.Í.) stendur fyrir þjóðbúningaferð á Ólafsvökuna í Færeyjum dagana 26.7.-31.7.2024
URL:https://thjodbuningur.is/vidburdur/thjodbuningaferd-a-olafsvoku/
ORGANIZER;CN="%C3%9Ej%C3%B3%C3%B0b%C3%BAningaf%C3%A9lag %C3%8Dslands":MAILTO:postur@thjodbuningur.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240714T200000
DTEND;TZID=UTC:20240714T200000
DTSTAMP:20260604T203247
CREATED:20240701T133224Z
LAST-MODIFIED:20240701T133224Z
UID:426-1720987200-1720987200@thjodbuningur.is
SUMMARY:Sumarmessa í Tungufellskirkju
DESCRIPTION:Sumarmessa í Tungufellskirkju sunnudagskvöldið 14. júlí kl. 20. Sumarsálmar í almennum söng\, orð og bæn. Verið öll hjartanlega velkomin. (Athugið að þessi messa kemur í stað síðsumarsmessu sem áformuð var sunnudaginn 11. ágúst).\nÞað er alltaf einstakt að vera við messu í Tungufellskirkju og það væri gaman að sjá sem flesta kirkjugesti þjóðlega klædda.
URL:https://thjodbuningur.is/vidburdur/sumarmessa-i-tungufellskirkju/
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240623T203000
DTEND;TZID=UTC:20240623T220000
DTSTAMP:20260604T203247
CREATED:20240621T113501Z
LAST-MODIFIED:20240621T113501Z
UID:420-1719174600-1719180000@thjodbuningur.is
SUMMARY:Fjallkonur\, álfakonur-Lautarferð á Jónsmessi í Hellisgerði
DESCRIPTION:  \nÞjóðbúningafólk ætlar að hittast í Hellisgerði að kveldi 23. júní og fagna Jónsmessu. Hafið með ykkur nesti í körfu\, teppi\, dúk og kannski smá freyðandi. Ef veður verður rakt verður hægt að leita skjóls í glerhýsum í Hellisgerði
URL:https://thjodbuningur.is/vidburdur/fjallkonur-alfakonur-lautarferd-a-jonsmessi-i-hellisgerdi/
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240621T110000
DTEND;TZID=UTC:20240621T133000
DTSTAMP:20260604T203247
CREATED:20240621T114523Z
LAST-MODIFIED:20240621T114523Z
UID:423-1718967600-1718976600@thjodbuningur.is
SUMMARY:
DESCRIPTION:  \nÓlafía var forvígismaður íslenskrar kvennabaráttu\, byltingarkona og heimskona. Hún ferðaðist víða um Ísland og hélt fyrirlestra á vegum Hvítabandsins. Síðar fór hún til Bandaríkjanna\, Kanada\, Englands\, Skotlands og Noregs til að halda fyrirlestra um jafnréttismál\, menntamál\, trúmál\, lífeyrisréttindi og heilbrigðismál.Árið 1912 stofnaði hún heimili fyrir utangarðskonur og skrifaði síðan bókina Aumastar allra: Myndir frá skuggahliðum Kristjaníu.Bókin vakti mikla athygli bæði á Íslandi og erlendis\, var endurútgefin oft í Noregi og einnig þýdd yfir á ensku og gefin út í Kanada. Ólafía ritaði síðar endurminningar sínar Frá myrkri til ljóss. Bókin\, sem gefin var út árið 1925\, var tímamótaverk í íslenskri bókmenntasögu en þetta var í fyrsta sinn sem sjálfsævisaga konu kom út á prenti.\n\nDagskrá:11:00 Hittast á Hallveigarstöðum\, sem flest klædd íslenskum þjóðbúningi (hægt að mæta kl. 10:00 og fá aðstoð við að klæðast) – Myndataka\n11:30 Ávörp\n12:00 Gengið saman í fylkingu að leiði Ólafíu í Hólavallagarði og blómsveigur lagður að leiði – Myndataka\nSéra Henning Emil Magnússon fer með blessun og fulltrúi djákna leiðir bæn\n12:30 Kaffi á Hallveigarstöðum – Orðið laust\n13:30 Dagskrárlok\n\nEftirfarandi standa saman að minningarathöfninni:\nBandalag kvenna í ReykjavíkDjáknafélag Íslands Félagsráðgjafafélag Íslands Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands Handleiðslufélag Íslands Hvítabandið Kvenfélagasamband Íslands Kvenréttindafélag Íslands Mosfellsprestakall
URL:https://thjodbuningur.is/vidburdur/423/
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240617T130000
DTEND;TZID=UTC:20240617T160000
DTSTAMP:20260604T203247
CREATED:20240613T101538Z
LAST-MODIFIED:20240613T101726Z
UID:415-1718629200-1718640000@thjodbuningur.is
SUMMARY:Þjóðhátíð Árbæjarsafnsins
DESCRIPTION:Þjóðhátíðardeginum 17. júní verður fagnað með fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá þar sem þjóðbúningar\, þjóðdansar\, fjallkonan\, fornbílar\, harmóníkuleikur og gömlu góðu sleikjóarnir koma við sögu. Frítt inn í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldisins. \nAð vanda eru þjóðbúningurinn og þjóðdansar í öndvegi á þessum hátíðardegi og eru gestir hvattir til að mæta í eigin þjóðbúningi.\nFjallkonu Árbæjarsafns verður skautað í safnhúsinu Lækjargötu kl. 14 en eftir það hefst kennsla í þjóðdönsum undir leiðsögn Atla Freys Hjaltasonar.\nNokkrir félagar úr Fornbílaklúbbnum mæta með drossíur sínar sem verða til sýnis á víð og dreif um safnsvæðið.\nSkátar verða með fjáröflun á safntorginu og Slysavarnardeildin í Reykjavík verður með veitingasölu við Dillonshús.\nLitríku og góðu sleikjóarnir verða á sínum stað í Krambúðinni.\nHarmóníkuleikur verður við torgið\, Árbæ og við Dillonshús.\nKomið og fagnið 80 ára afmæli lýðveldisins með okkur á Árbæjarsafni!
URL:https://thjodbuningur.is/vidburdur/thjodhatid-arbaejarsafnsins/
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240617
DTEND;VALUE=DATE:20240618
DTSTAMP:20260604T203247
CREATED:20240405T183404Z
LAST-MODIFIED:20240405T183404Z
UID:316-1718582400-1718668799@thjodbuningur.is
SUMMARY:Þ.Í. - 17.júní skrúðganga Hafnafirði.
DESCRIPTION:Þ.Í.  17 júní Þjóðbúningafélag Íslands tekur þátt í skrúðgöngu  í Hafnarfirði. Sýning Annríkis í Hafnarborg sama dag á íslenskum þjóðbúningum. Myndataka af öllum sem eru í þjóðbúningum við Hafnarborg þennan dag. Félagar í Þ.Í. eru hvattir til að klæðast íslenska þjóðbúningnum á þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga. Félagar hvattir til að mæta og taka þátt í skrúðgöngu í Hafnarfirði og mæta í myndatöku við Hafnarborg ef þeir hafa tækifæri til þess.
URL:https://thjodbuningur.is/vidburdur/th-i-17-juni-skrudganga-hafnafirdi/
ORGANIZER;CN="%C3%9Ej%C3%B3%C3%B0b%C3%BAningaf%C3%A9lag %C3%8Dslands":MAILTO:postur@thjodbuningur.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240615
DTEND;VALUE=DATE:20240617
DTSTAMP:20260604T203247
CREATED:20240405T183232Z
LAST-MODIFIED:20240613T101833Z
UID:314-1718409600-1718582399@thjodbuningur.is
SUMMARY:Hátíðarhöld Þingvöllum- 80 ára afmæli lýðveldisins
DESCRIPTION:15 og 16 júní eru hátíðarhöld á Þingvöllum í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldisins og 1150 ára afmæli Íslandsbyggðar.  \n16:00 Fjallkonan snýr aftur\nÁ lýðveldishátiðinni 17. Júní 1944 „gleymdist“ fjallkonan í öllum hátíðarhöldunum og slæma veðrinu. Nú mun fjallkonan fá uppreist æru og stíga upp á pall á Lögbergi.\nStaðsetning – Lögberg \nFélagar í Þ.Í. eru hvattir til að klæðast íslenska þjóðbúningnum og hittast saman þann 16.júní frá kl 13:00- 17:00\n \nNánari upplýsingar um dagskrá:\n \n\n\n\nVelkomin til Þingvalla – Dagskrá laugardaginn 15. júní\n\n13:00 Heill heimur af börnum – Ef ég væri forseti…\nBörn á Íslandi miðla á skapandi hátt á nýju gagnvirku Íslandskorti því sem þeim finnst mikilvægt og áhrifaríkt í lífi sínu og umhverfi. Ásmundur Einar Daðason afhjúpar menningarkort barnanna. Í kjölfarið verður vinnustofan\, “Ef ég væri forseti…” undir stjórn Kristínar R. Vilhjálmsdóttur.\nStaðsetning – Gestastofa á Haki  \n13:00 – 16:00  Fornleifaskóli barnanna\nVerður starfandi við Valhallarsvæðið sem gefur krökkum tækifæri á að setja sig í spor fornleifafræðinga\, grafa eftir hlutum og teikna upp rústir.\nStaðsetning – Valhöll  \n13:00-17:00 Víkingar\nVíkingatjöld verða uppsett á búðarústum á nokkrum stöðum norðan Valhallareitsins ásamt því að víkingar og handverksmenn sýna verk sín um leið.\nStaðsetning – Valhöll  \nKl 14:00 Lýðveldisganga með landverði\nGönguferð frá gestastofu þjóðgarðsins á Haki. Áhersla verður á lýðveldishátíðina 17. júní 1944.\nStaðsetning – Valhöll  \nKl: 14.00 Leikhópurinn Lotta – Söngvasyrpa\nLeikhópurinn Lotta verður verður með söngvaskemmtun við Valhallarreitinn.\nStaðsetning – Valhöll  \nKl 14:00-16:00 Skógarganga\nGönguferð í Skógarkot með landverði þar sem fjallað verður um náttúru sigdalsins og sögu eyðibýlanna í þjóðgarðinum.\nStaðsetning – Valhöll  \n14:00-16:00 Tónleikar í Þingvallakirkju \n16:00 Ljósmyndasýning 17. júní 1944\nOpnun ljósmyndasýningarinnar 17. júní 1944 í gestastofu þjóðgarðsins á Haki. Sýningin er unnin í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands og verður til sýnis myndefni frá hátíðarhöldum á Þingvöllum þegar Ísland varð sjálfstætt. \n13:00 – 17:00 Matarvagnahátíð á Valhallarreitnum\nMatarvagnar í samstarfi við Reykjavík Street Food verða við Valhallarreitinn. Þar geta gestir keypt sér veitingar í föstu og fljótandi formi. \n\n\n\n\n\nVelkomin til Þingvalla – Dagskrá sunnudaginn 16. júní\n\n11:00 Gengið til góðs – Lýðveldið Ísland á tímamótum\nGuðni Th. Jóhannesson forseti Íslands gengur með gesti frá Haki\, niður Almannagjá og endar við Valhallarreitinn.\nStaðsetning – Gestastofa Hak \n11:00 Ferðafélag barnanna skundar á Þingvöll\nFerðafélag barnanna býður upp á göngu á þingvöllum í tilefni 80 ára lýðveldisafmæli íslensku þjóðarinnar. Gengið verður frá geststofunni á Haki\, niður Almannagjá og að Öxarárfossi. Nánari upplýsingar má nálgast á vef Ferðafélags barnanna. \n13:00 – 22:00 Matarvagnahátíð á Valhallarreitnum\nMatarvagnar í samstarfi við Reykjavík Street Food verða við Valhallarreitinn. Þar geta gestir keypt sér veitingar í föstu og fljótandi formi. \n13:00 – 16:00 Sungið með landinu á Þingvöllum\nGuðni Th. Jóhannesson forseti Íslands setur kórahátíð í Almannagjá við Lögberg. Fjöldi kóra mun skiptast á að syngja við Lögberg á hálftíma fresti. Sjá nánar á viðburðinum Kórahátíð.\nKóradagskrá 16. júní við Lögberg í Almannagjá.\n13:00 Samkór eldri borgara\n13:30 Karlakór Kjalnesinga\n14:00 Kvennakór Hafnarfjarðar\n14:30 Hljómfélagið\n15:00 Kvennakór Háskólans\n15:30 Raddbandafélagið\nStaðsetning – Lögberg \n13:00 – 16:00 Fornleifaskóli barnanna\nFornleifaskóli barnanna verður starfandi við Valhallarsvæðið sem gefur krökkum tækifæri á að setja sig í spor fornleifafræðinga\, grafa eftir hlutum og teikna upp rústir.\nStaðsetning – Valhöll  \n13:00-17:00 Víkingar\nVíkingatjöld verða uppsett á búðarústum á nokkrum stöðum norðan Valhallareitsins ásamt því að víkingar og handverksmenn sýna verk sín um leið.\nStaðsetning – Valhöll  \n14:00 – 16:00 Teymt undir börnum við Öxará\nBörnum er boðið að kynnast íslenska hestinum við bakka Öxarár.\nStaðsetning – Valhöll \n15:00 Glíma\nGlímusýning verður í boði Glímusambands Íslands. Gestir fá bæði að sjá fagmenn leika listir sínar í þessari fornu þjóðaríþrótt íslendinga. \nStaðsetning – Valhöll\n \n16:00 Fjallkonan snýr aftur\nÁ lýðveldishátiðinni 17. Júní 1944 „gleymdist“ fjallkonan í öllum hátíðarhöldunum og slæma veðrinu. Nú mun fjallkonan fá uppreist æru og stíga upp á pall á Lögbergi.\nStaðsetning – Lögberg \n15:00 Glíma\nGlímusýning verður í boði Glímusambands Íslands. Gestir fá bæði að sjá fagmenn leika listir sínar en einnig að reyna á sína eigin kunnáttu í þessari þjóðaríþrótt.\nStaðsetning – Valhöll \n16.00 – 21:30 Söngvavaka á Valhallarreitnum á Lýðveldishátið\n \n16:00 Leikhópurinn Lotta söngvasyrpa\n16.30 Góss\n17.30 Bubbi\n18.30 Valdimar\n19.45 Raddbandafélagið\n20.00 GDRN og Reiðmenn vindanna\n20.30 Helgi Björns og Reiðmenn vindanna\nStaðsetning – Valhöll \n  \n\n\n\n\n\nVelkomin til Þingvalla – Dagskrá mánudaginn 17. júní\n\n15:00 – Hátíðarguðþjónusta í Þingvallakirkju. Séra Axel Arnarson Njarðvík þjónar fyrir altari. \n\n______________________________________________________________________ \n\n\n\nLýðveldishátíð á Þingvöllum 15-17. júní\nMikið verður um að vera í þjóðgarðinum á Þingvöllum um næstu helgi. Boðið verður upp á margháttaða dagskrá til að minnast þeirra merku tímamóta er Ísland varð sjálfstætt lýðveldi þann 17. júní 1944 við hátíðlega athöfn að Lögbergi á Þingvöllum.\nHátíðardagskrá verður helgina 15. og 16. júní með ýmsum viðburðum\, sýningaropnun í gestastofu\, gönguferðum með góðum leiðsögumönnum m.a. landvörðum og forseta Íslands\, kórasöng í Almannagjá þar sem fjölmargir kórar munu syngja og söngvavöku á sunnudagskvöldið á gamla Valhallarreitnum. Frá klukkan 16:00 og fram eftir kveldi munu gestir á Þingvöllum syngja saman á söngvavöku á Valhallarreit. Meðal þeirra sem koma fram eru Leikhópurinn Lotta\, Söngsveitin Góss með Sigríði Thorlacius og Sigurði Guðmundssyni í broddi fylkingar\, Bubbi Morthens\, Raddbandafélag Reykjavíkur\, Valdimar\, Reiðmenn vindanna\, Helgi Björns og GDRN. Þar verða einnig fjöldi matarvagna hátíðardagana þar sem hægt verður að gera vel við sig í mat og drykk og eiga ljúfa stund með fjölskyldunni.\nÞjóðhátíðardaginn 17.júní verður hátíðarguðsþjónusta í Þingvallakirkju kl. 15.00\nNánari upplýsingar um dagskrána og umferðarstýringu má finna á heimasíðu þjóðgarðsins á Þingvöllum:\n\n\nhttps://www.thingvellir.is/afthreying/lydveldi-i-80-ar/\n\n\nNokkur atriði varðandi umferð:\nLjóst er að umsvif hátíðarhaldanna mun hafa áhrif á samgöngur á svæðinu en reynt verður eftir fremsta megni að halda umferð hópferðabíla og annarra ferðaþjónustuaðila um Þingvelli óraskaðri. Samráð hefur verið haft við ferðaþjónustuaðila við Silfru svo þeir geti sinnt gestum sínum.\n• Bílastæði verða útbúin á grasflötunum við Efrivallaveg neðan við Öxarárfoss\, ásamt því að tjaldsvæðið á Syðri-Leirum\, sunnan þjónustumiðstöðvarinnar verður nýtt sem bílastæði ef þörf krefur. Einnig verða eldri bílastæði frá fyrri hátíðum nýtt vestan gestastofunnar við Hakið.\n• Um helgina verður fallið frá aðskilnaði smærri og stærri hópbifreiða fyrir framan gestastofu þjóðgarðsins og verður þeim öllum vísað á stærra rútubílastæðið. Innra stæðið\, sem nú er nýtt undir smærri hópbifreiðar\, verður nýtt undir almenna fólksbíla. Þess má geta að heimilt er að leggja smærri hópbifreiðum meðfram vegkantinum inn að gestastofu.\n• Frá og með föstudeginum 14. júní verður Valhallarvegi (363) lokað við Silfru og inn að Valhallarreitnum. Mun sú lokun vara alla helgina.\n• Veglokun verður við gatnamót Efrivallavegar (361) og Vallavegar (362) og þar verður umferð stýrt niður í átt að Þingvöllum og Þingvallavatni.\n• Ferðaþjónustuaðilar hafa að venju aðgengi að bílastæðunum P1\, P2 og P3 en líkt og áður var nefnt verður lokað niður að P5 (Valhallarbílastæðinu).\n• Ef bílastæðin á völlunum neðan við Öxarárfoss fyllast þá verður hátíðargestum kleift að leggja á tjaldsvæðinu á Syðri Leirum. Þaðan er um 25 mínútna ganga niður að Valhallarreitnum en einnig verður boðið upp á gjaldfrjálsa akstursþjónustu í hópferðabíl frá Syðri Leirum niður að Flosagjá/Peningagjá. Þaðan tekur aðeins fáeinar mínútur að ganga síðasta spölinn niður að hátíðarsvæðinu.\n• Handhafar P-merkja geta áfram lagt við Flosagjá/Peningagjá.
URL:https://thjodbuningur.is/vidburdur/hatidarhold-thingvollum-80-ara-afmaeli-lydveldisins/
ORGANIZER;CN="%C3%9Ej%C3%B3%C3%B0b%C3%BAningaf%C3%A9lag %C3%8Dslands":MAILTO:postur@thjodbuningur.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240608
DTEND;VALUE=DATE:20240609
DTSTAMP:20260604T203247
CREATED:20240405T183051Z
LAST-MODIFIED:20240605T192934Z
UID:312-1717804800-1717891199@thjodbuningur.is
SUMMARY:Heimsókn á Bessastaði - Opið hús
DESCRIPTION:8. júní heimsókn á Bessastaði. Opið hús á Bessastöðum. Þjóðbúningafélag Íslands heiðrar þennan sögulega stað með heimsókn félaga uppáklæddum í þjóðbúningum frá ýmsum sögulegum tímum landsins.  \nOpið hús verður á Bessastöðum nk. laugardaginn 8. júní í tilefni af 80 ára lýðveldisafmæli Íslands.\nVið viljum hvetjum félagsmenn og alla velunnara Þjóðbúningafélags Íslands til að fjölmenna uppábúin og hittast kl. 14:00 á Bessastöðum.\n 
URL:https://thjodbuningur.is/vidburdur/heimsokn-a-bessastadi-opid-hus/
ORGANIZER;CN="%C3%9Ej%C3%B3%C3%B0b%C3%BAningaf%C3%A9lag %C3%8Dslands":MAILTO:postur@thjodbuningur.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240530
DTEND;VALUE=DATE:20240531
DTSTAMP:20260604T203247
CREATED:20240405T182920Z
LAST-MODIFIED:20240517T113240Z
UID:310-1717027200-1717113599@thjodbuningur.is
SUMMARY:Þ.Í. Aðalfundur Þjóðbúningafélag Íslands
DESCRIPTION:Þ.Í. Aðalfundur þjóðbúningafélags Íslands 30.maí. kl. 17.00 í Annríki Hafnarfirði.               \nFundargestir hvattir til að mæta í Þjóðbúningum.  \nFarið út að borða kl. 19.00 að loknum aðalfundi.
URL:https://thjodbuningur.is/vidburdur/th-i-adalfundur-thjodbuningafelag-islands/
ORGANIZER;CN="%C3%9Ej%C3%B3%C3%B0b%C3%BAningaf%C3%A9lag %C3%8Dslands":MAILTO:postur@thjodbuningur.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240525T110000
DTEND;TZID=UTC:20240525T130000
DTSTAMP:20260604T203247
CREATED:20240405T182708Z
LAST-MODIFIED:20240517T112229Z
UID:308-1716634800-1716642000@thjodbuningur.is
SUMMARY:Útskrift Annríkis í Hafnarborg\, nemendur á vorönn útskrifast.
DESCRIPTION:Útskrift Annríkis í Hafnarborg kl. 11.00\, nemendur á vorönn útskrifast.\nlaugardaginn 25. maí 2024\, kl. 11.00-13.00 í Hafnarborg.
URL:https://thjodbuningur.is/vidburdur/utskrift-annrikis-i-hafnarborg-nemendur-a-voronn-utskrifast/
ORGANIZER;CN="%C3%9Ej%C3%B3%C3%B0b%C3%BAningaf%C3%A9lag %C3%8Dslands":MAILTO:postur@thjodbuningur.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240502
DTEND;VALUE=DATE:20240503
DTSTAMP:20260604T203247
CREATED:20240413T230546Z
LAST-MODIFIED:20240413T230615Z
UID:401-1714608000-1714694399@thjodbuningur.is
SUMMARY:Dansiball í Miðgardi í Sæluviku
DESCRIPTION:Skagfirðingar kunna vel að skemmta sérSést það best á Sælunni hvað lífið erAllir fara í betri föt og bregða sér í dansMeð brennivín í maganum og dansa Óla skansGiftir menn og giftar frúrGanga hjónaböndum úrHver og einn er frjáls og frírAð faðma það sem hann langar íSkagfirðingar eru fyrir hopp og hí.\nPilsaþytur í Skagafirði býður til dansveislu í Miðgarði fimmtudaginn 2. maí nk. frá klukkan 20 til klukkan 23. Stúlli og félagar frá Siglufirði spila fyrir dansi. Ekkert aldurstakmark verður og aðganseyrir aðeins 2.000 kr. Heitt á könnunni og opin sjoppa.\nVið höfum nú reyndar hugsað okkur að halda okkur í hjónaböndunum og sleppa brennivíninu í maganum. En við ætlum svo sannarlega að dansa Óla skans og fara í betri fötin. Já það verður sko örugglega hopp og hí.\nVið Pilsaþytskonur verðum uppábúnar og hvetjum fólk til að dusta nú rykið af upphlutum\, peysufötum og öðrum sparifötum og stíga dans svo pilsin sviptist og faldar lyftist.\nVonumst til að sjá sem flesta.
URL:https://thjodbuningur.is/vidburdur/dansiball-i-midgardi-i-saeluviku/
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240425T130000
DTEND;TZID=UTC:20240425T150000
DTSTAMP:20260604T203247
CREATED:20240219T170420Z
LAST-MODIFIED:20240219T170420Z
UID:108-1714050000-1714057200@thjodbuningur.is
SUMMARY:Þjóðbúningamessa Rangárþing Eystra
DESCRIPTION:Þjóðbúningamessa verður í Stórólfshvolskirkju\, sumardaginn fyrsta 25. apríl kl. 13:00. Prestur er Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir og organisti er Kristín Sigfúsdóttir. Eftir messu mun sveitafélagið bjóða til kaffi og meðlæti í félagsheimilinu Hvolnum á Hvolsvelli. Allir hjartanlega velkomnir\, en hvetjum fólk sem á þjóðbúninga til að koma í þeim til messu.\nMeðfylgjandi mynd er frá Hrafni Óskarssyni.
URL:https://thjodbuningur.is/vidburdur/thjodbuningamessa-rangarthing-eystra/
LOCATION:Stórólfshvolskirkja\, Hvolströð\, Hvolsvöllur\, 860\, Iceland
ORGANIZER;CN="%C3%9Ej%C3%B3%C3%B0b%C3%BAningaf%C3%A9lag %C3%8Dslands":MAILTO:postur@thjodbuningur.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240425
DTEND;VALUE=DATE:20240426
DTSTAMP:20260604T203247
CREATED:20240406T122015Z
LAST-MODIFIED:20240406T122015Z
UID:327-1714003200-1714089599@thjodbuningur.is
SUMMARY:Þjóðbúningamessa í Bíldudalskirkju
DESCRIPTION:Þjóðbúningamessa verður haldin í Bíldudalskirkju á Sumardaginn fyrsta 25 apríl kl. 14.00. \n\n\nSéra Agnes M.Sigurðardóttir biskup Íslands predikar. Konur úr þjóðbúningafélaginu Auði  taka þátt í þjónustunni. Fjölmennum í fallegu búningunum  okkar og gaman væri að sjá búninga allsstaðar að úr heiminum. Kaffi í Muggstofu að messu lokinni.
URL:https://thjodbuningur.is/vidburdur/thjodbuningamessa-i-bildudalskirkju/
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240415
DTEND;VALUE=DATE:20240423
DTSTAMP:20260604T203247
CREATED:20240411T151141Z
LAST-MODIFIED:20240416T183947Z
UID:397-1713139200-1713830399@thjodbuningur.is
SUMMARY:Þjóðdansanámskeið
DESCRIPTION:Þjóðdansanámskeiði er i boði fyrir hópinn okkar sem fer á Ólafsvöku.\nNámskeiðið verður:  mánudagana 15.apríl og 22.apríl\, kl.17:00.\nStaður:  Hrafnistu í Hafnarfirði\, í salnum á 1.hæð\nKennarar eru frá Hafdís og Ása hjá danshópnum Sporinu.\n\n\nKennarar: Ásrún Kristjánsdóttir\, Jónas Dalberg Karlsson og Hafdís Pétursdóttir. \nTími nr. 2. verður á mánudaginn 22.4. kl. 17.30. Allir velkomnir \nDanshópurinn Sporið er á facebook og svo einnig undir Sporið.is \n\nKostnaður er 3.000 kr á mann\, enginn posi er á staðnum svo endilega komið með pening.\n\nVið hvetjum alla sem fara með okkur á Ólafsvöku að taka þátt.\nEkki er þörf á að mæta í þjóðbúning og eiginlega er betra að sleppa því alveg á meðan við erum að læra sporin\, muna bara að vera í góðum skóm.\nSkráning er á facebook.\nEf einhverjar spurningar vakna hafið þá samband við Björk í síma 661 8357
URL:https://thjodbuningur.is/vidburdur/thjoddansanamskeid/
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240217
DTEND;VALUE=DATE:20240218
DTSTAMP:20260604T203247
CREATED:20240405T182024Z
LAST-MODIFIED:20240405T182024Z
UID:306-1708128000-1708214399@thjodbuningur.is
SUMMARY:Þ.Í. -Viðburða og ferðanefndar fundur vegna ferðar Ólafsvöku í Færeyjum
DESCRIPTION:Febrúar 2024\n\n\nÞ.Í. Fundur Viðburða og ferðanefndar haldinn í Annríki 17.2. fyrir þátttakendur Þjóðbúningafélags Íslands\, vegna ferðar á Ólafsvöku í Færeyjum dagana 26.7. til 31.07.
URL:https://thjodbuningur.is/vidburdur/th-i-vidburda-og-ferdanefndar-fundur-vegna-ferdar-olafsvoku-i-faereyjum/
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240116T080000
DTEND;TZID=UTC:20240326T170000
DTSTAMP:20260604T203247
CREATED:20240405T181725Z
LAST-MODIFIED:20240405T181725Z
UID:304-1705392000-1711472400@thjodbuningur.is
SUMMARY:Námskeið í Þjóðbúningasaumi/Vorönn í Annríki Hafnafirði
DESCRIPTION:Janúar 2024\n\n\nNámskeið í Þjóðbúningasaumi vorönn hefst í Annríki Hafnarfirði.
URL:https://thjodbuningur.is/vidburdur/namskeid-i-thjodbuningasaumi-voronn-i-annriki-hafnafirdi/
ORGANIZER;CN="%C3%9Ej%C3%B3%C3%B0b%C3%BAningaf%C3%A9lag %C3%8Dslands":MAILTO:postur@thjodbuningur.is
END:VEVENT
END:VCALENDAR