BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Þjóðbúningafélag Íslands - ECPv6.15.17.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://thjodbuningur.is
X-WR-CALDESC:Events for Þjóðbúningafélag Íslands
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240907
DTEND;VALUE=DATE:20240909
DTSTAMP:20260604T133918
CREATED:20240405T183512Z
LAST-MODIFIED:20240903T112748Z
UID:318-1725667200-1725839999@thjodbuningur.is
SUMMARY:Þ.Í. Fjallkonuhátíð í Skagafirði/Hátíðarhöld.
DESCRIPTION:7. og 8. september 2024\nDagana 7. og 8. september 2024 fer fram Fjallkonuhátíð í Skagafirði. Fjölbreytt dagskrá með áhugaverðum erindum um baðstofulíf og búningaþróun á 19 öld\, þjóðbúningasýningu\, þjóðbúningamessu\, kynnisferð um sögustaði\, heimsókn í Glaumbæ\, myndatökum og söng. \nFjallkonuhátíðin er haldin í tilefni 80 ára afmælis íslenska lýðveldisins. Hún er tileinkuð þremur einstaklingum sem settu mark sitt á þróun íslenskra kvenbúninga á 19. öld. Sigurður „málari“ Guðmundsson\, frá Hellulandi í Hegranesi var þjóðernisrómantíker sem unni fögru handverki. Undir áhrifum gömlu faldbúninganna fór Sigurður að leita heimilda um búninga og handverk. Hann skráði m.a. frásögn um einstakan faldbúning sem Guðrún Skúladóttir frá Ökrum saumaði og seldur var til Englands 1809. Í samstarfi við konur lagði hann til breytta útgáfu af faldbúningi\, skautbúning\, táknmynd íslensks þjóðernis. Samstarfskona Sigurðar í Skagafirði Sigurlaug Gunnarsdóttir frá Ási í Hegranesi saumaði skautbúning eftir fyrirmynd Sigurðar\, þann elsta sem varðveist hefur. Fyrir áhuga Sigurðar og hvatningu þróuðust kvenbúningarnir inn í nýjan tíðaranda 19. aldar. Skautbúningurinn fékk hlutverk í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga\, þjóðbúningur borinn af stoltum konum sem Sigurður hvatti til dáða er hann sagði: „af yðar mynd er Ísland kallað „fjallkonan fríð““. \nDagskrá laugardagsins fer fram í Miðgarði\, Varmahlíð og er öllum opin og ókeypis. \nDagskrá sunnudags hefst með messu að Hólum í Hjaltadal. Eftir það verður farin rútuferð um sögustaði í Skagafirði. Skráning í ferðina og verð 4000. \nAllir velkomnir og gestir eru hvattir til að mæta í þjóðbúningum báða dagana. \nAð hátíðinni standa Þjóðbúningafélag Íslands\, Pilsaþytur í Skagafirði og Annríki – Þjóðbúningar og skart. Sveitarfélagið Skagafjörður\, Kaupfélag Skagfirðinga og Byggðasafn Skagafjarðar styrkja hátíðina og hafi bestu þakkir fyrir. \n\n\n\nDagskrá Fjallkonuhátíðar – gestir hvattir til að mæta í þjóðbúningum \nLaugardagur 7. september – Miðgarður í Varmahlíð – frítt inn  \n  \n\n– 17.00 Þjóðbúningasýning – opið allan daginn\n\n13.00             Fjallkonuhátíð sett með ávarpi forystukvenna í Pilsaþyt og Þjóðbúningafélagi Íslands \n13.20             Lífið í baðstofunni \nBerglind Þorsteinsdóttir\, safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga \nUmræður og söngur \n14.00             Kaffi \n14.30             Konur „af yðar mynd er Ísland kallað „fjallkonan fríð““. \nGuðrún Hildur Rosenkjær\, klæðskeri og sagnfræðingur \nÞjóðbúningkynning með þátttöku búningaklæddra gesta \nUmræður og söngur \n15.45             Þjóðbúningamyndataka \n16.00             Þjóðbúningasýning skoðuð \n17.00             Fjallkonuhátíð lokið á laugardegi \nSunnudagur 8. september 2024 – þjóðbúningamyndataka á sögustöðum \n13-18.00       Þjóðbúningasýning í Miðgarði opin \n11.00             Hólakirkja – Séra Halla Stefánsdóttir messar \n12.30             Léttar veitingar á Hólum – hver og einn greiðir fyrir sig \n14.00             Rútuferð um sögustaði í Skagafirði\, fararstjórar Kristín Sigurrós Einarsdóttir og Níels Ómarsson. Komið við á Ökrum þar sem Guðrún Skúladóttir bjó. Ekið um Hegranes þar sem Sigurður málari og Sigurlaug Gunnarsdóttir bjuggu. Byggðasafnið í Glaumbæ heimsótt – frítt inn \nHámarksfjöldi 60 manns. Verð 4000                                                     Skráning: pilsathytur@gmail.com \n17.00             Komið til baka að Hólum – Fjallkonuhátíð lokið – Bestu þakkir
URL:https://thjodbuningur.is/vidburdur/th-i-hatidarhold-skagafirdi/
ORGANIZER;CN="%C3%9Ej%C3%B3%C3%B0b%C3%BAningaf%C3%A9lag %C3%8Dslands":MAILTO:postur@thjodbuningur.is
END:VEVENT
END:VCALENDAR