BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Þjóðbúningafélag Íslands - ECPv6.15.17.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Þjóðbúningafélag Íslands
X-ORIGINAL-URL:https://thjodbuningur.is
X-WR-CALDESC:Events for Þjóðbúningafélag Íslands
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20240615
DTEND;VALUE=DATE:20240617
DTSTAMP:20260604T104139
CREATED:20240405T183232Z
LAST-MODIFIED:20240613T101833Z
UID:314-1718409600-1718582399@thjodbuningur.is
SUMMARY:Hátíðarhöld Þingvöllum- 80 ára afmæli lýðveldisins
DESCRIPTION:15 og 16 júní eru hátíðarhöld á Þingvöllum í tilefni af 80 ára afmæli lýðveldisins og 1150 ára afmæli Íslandsbyggðar.  \n16:00 Fjallkonan snýr aftur\nÁ lýðveldishátiðinni 17. Júní 1944 „gleymdist“ fjallkonan í öllum hátíðarhöldunum og slæma veðrinu. Nú mun fjallkonan fá uppreist æru og stíga upp á pall á Lögbergi.\nStaðsetning – Lögberg \nFélagar í Þ.Í. eru hvattir til að klæðast íslenska þjóðbúningnum og hittast saman þann 16.júní frá kl 13:00- 17:00\n \nNánari upplýsingar um dagskrá:\n \n\n\n\nVelkomin til Þingvalla – Dagskrá laugardaginn 15. júní\n\n13:00 Heill heimur af börnum – Ef ég væri forseti…\nBörn á Íslandi miðla á skapandi hátt á nýju gagnvirku Íslandskorti því sem þeim finnst mikilvægt og áhrifaríkt í lífi sínu og umhverfi. Ásmundur Einar Daðason afhjúpar menningarkort barnanna. Í kjölfarið verður vinnustofan\, “Ef ég væri forseti…” undir stjórn Kristínar R. Vilhjálmsdóttur.\nStaðsetning – Gestastofa á Haki  \n13:00 – 16:00  Fornleifaskóli barnanna\nVerður starfandi við Valhallarsvæðið sem gefur krökkum tækifæri á að setja sig í spor fornleifafræðinga\, grafa eftir hlutum og teikna upp rústir.\nStaðsetning – Valhöll  \n13:00-17:00 Víkingar\nVíkingatjöld verða uppsett á búðarústum á nokkrum stöðum norðan Valhallareitsins ásamt því að víkingar og handverksmenn sýna verk sín um leið.\nStaðsetning – Valhöll  \nKl 14:00 Lýðveldisganga með landverði\nGönguferð frá gestastofu þjóðgarðsins á Haki. Áhersla verður á lýðveldishátíðina 17. júní 1944.\nStaðsetning – Valhöll  \nKl: 14.00 Leikhópurinn Lotta – Söngvasyrpa\nLeikhópurinn Lotta verður verður með söngvaskemmtun við Valhallarreitinn.\nStaðsetning – Valhöll  \nKl 14:00-16:00 Skógarganga\nGönguferð í Skógarkot með landverði þar sem fjallað verður um náttúru sigdalsins og sögu eyðibýlanna í þjóðgarðinum.\nStaðsetning – Valhöll  \n14:00-16:00 Tónleikar í Þingvallakirkju \n16:00 Ljósmyndasýning 17. júní 1944\nOpnun ljósmyndasýningarinnar 17. júní 1944 í gestastofu þjóðgarðsins á Haki. Sýningin er unnin í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands og verður til sýnis myndefni frá hátíðarhöldum á Þingvöllum þegar Ísland varð sjálfstætt. \n13:00 – 17:00 Matarvagnahátíð á Valhallarreitnum\nMatarvagnar í samstarfi við Reykjavík Street Food verða við Valhallarreitinn. Þar geta gestir keypt sér veitingar í föstu og fljótandi formi. \n\n\n\n\n\nVelkomin til Þingvalla – Dagskrá sunnudaginn 16. júní\n\n11:00 Gengið til góðs – Lýðveldið Ísland á tímamótum\nGuðni Th. Jóhannesson forseti Íslands gengur með gesti frá Haki\, niður Almannagjá og endar við Valhallarreitinn.\nStaðsetning – Gestastofa Hak \n11:00 Ferðafélag barnanna skundar á Þingvöll\nFerðafélag barnanna býður upp á göngu á þingvöllum í tilefni 80 ára lýðveldisafmæli íslensku þjóðarinnar. Gengið verður frá geststofunni á Haki\, niður Almannagjá og að Öxarárfossi. Nánari upplýsingar má nálgast á vef Ferðafélags barnanna. \n13:00 – 22:00 Matarvagnahátíð á Valhallarreitnum\nMatarvagnar í samstarfi við Reykjavík Street Food verða við Valhallarreitinn. Þar geta gestir keypt sér veitingar í föstu og fljótandi formi. \n13:00 – 16:00 Sungið með landinu á Þingvöllum\nGuðni Th. Jóhannesson forseti Íslands setur kórahátíð í Almannagjá við Lögberg. Fjöldi kóra mun skiptast á að syngja við Lögberg á hálftíma fresti. Sjá nánar á viðburðinum Kórahátíð.\nKóradagskrá 16. júní við Lögberg í Almannagjá.\n13:00 Samkór eldri borgara\n13:30 Karlakór Kjalnesinga\n14:00 Kvennakór Hafnarfjarðar\n14:30 Hljómfélagið\n15:00 Kvennakór Háskólans\n15:30 Raddbandafélagið\nStaðsetning – Lögberg \n13:00 – 16:00 Fornleifaskóli barnanna\nFornleifaskóli barnanna verður starfandi við Valhallarsvæðið sem gefur krökkum tækifæri á að setja sig í spor fornleifafræðinga\, grafa eftir hlutum og teikna upp rústir.\nStaðsetning – Valhöll  \n13:00-17:00 Víkingar\nVíkingatjöld verða uppsett á búðarústum á nokkrum stöðum norðan Valhallareitsins ásamt því að víkingar og handverksmenn sýna verk sín um leið.\nStaðsetning – Valhöll  \n14:00 – 16:00 Teymt undir börnum við Öxará\nBörnum er boðið að kynnast íslenska hestinum við bakka Öxarár.\nStaðsetning – Valhöll \n15:00 Glíma\nGlímusýning verður í boði Glímusambands Íslands. Gestir fá bæði að sjá fagmenn leika listir sínar í þessari fornu þjóðaríþrótt íslendinga. \nStaðsetning – Valhöll\n \n16:00 Fjallkonan snýr aftur\nÁ lýðveldishátiðinni 17. Júní 1944 „gleymdist“ fjallkonan í öllum hátíðarhöldunum og slæma veðrinu. Nú mun fjallkonan fá uppreist æru og stíga upp á pall á Lögbergi.\nStaðsetning – Lögberg \n15:00 Glíma\nGlímusýning verður í boði Glímusambands Íslands. Gestir fá bæði að sjá fagmenn leika listir sínar en einnig að reyna á sína eigin kunnáttu í þessari þjóðaríþrótt.\nStaðsetning – Valhöll \n16.00 – 21:30 Söngvavaka á Valhallarreitnum á Lýðveldishátið\n \n16:00 Leikhópurinn Lotta söngvasyrpa\n16.30 Góss\n17.30 Bubbi\n18.30 Valdimar\n19.45 Raddbandafélagið\n20.00 GDRN og Reiðmenn vindanna\n20.30 Helgi Björns og Reiðmenn vindanna\nStaðsetning – Valhöll \n  \n\n\n\n\n\nVelkomin til Þingvalla – Dagskrá mánudaginn 17. júní\n\n15:00 – Hátíðarguðþjónusta í Þingvallakirkju. Séra Axel Arnarson Njarðvík þjónar fyrir altari. \n\n______________________________________________________________________ \n\n\n\nLýðveldishátíð á Þingvöllum 15-17. júní\nMikið verður um að vera í þjóðgarðinum á Þingvöllum um næstu helgi. Boðið verður upp á margháttaða dagskrá til að minnast þeirra merku tímamóta er Ísland varð sjálfstætt lýðveldi þann 17. júní 1944 við hátíðlega athöfn að Lögbergi á Þingvöllum.\nHátíðardagskrá verður helgina 15. og 16. júní með ýmsum viðburðum\, sýningaropnun í gestastofu\, gönguferðum með góðum leiðsögumönnum m.a. landvörðum og forseta Íslands\, kórasöng í Almannagjá þar sem fjölmargir kórar munu syngja og söngvavöku á sunnudagskvöldið á gamla Valhallarreitnum. Frá klukkan 16:00 og fram eftir kveldi munu gestir á Þingvöllum syngja saman á söngvavöku á Valhallarreit. Meðal þeirra sem koma fram eru Leikhópurinn Lotta\, Söngsveitin Góss með Sigríði Thorlacius og Sigurði Guðmundssyni í broddi fylkingar\, Bubbi Morthens\, Raddbandafélag Reykjavíkur\, Valdimar\, Reiðmenn vindanna\, Helgi Björns og GDRN. Þar verða einnig fjöldi matarvagna hátíðardagana þar sem hægt verður að gera vel við sig í mat og drykk og eiga ljúfa stund með fjölskyldunni.\nÞjóðhátíðardaginn 17.júní verður hátíðarguðsþjónusta í Þingvallakirkju kl. 15.00\nNánari upplýsingar um dagskrána og umferðarstýringu má finna á heimasíðu þjóðgarðsins á Þingvöllum:\n\n\nhttps://www.thingvellir.is/afthreying/lydveldi-i-80-ar/\n\n\nNokkur atriði varðandi umferð:\nLjóst er að umsvif hátíðarhaldanna mun hafa áhrif á samgöngur á svæðinu en reynt verður eftir fremsta megni að halda umferð hópferðabíla og annarra ferðaþjónustuaðila um Þingvelli óraskaðri. Samráð hefur verið haft við ferðaþjónustuaðila við Silfru svo þeir geti sinnt gestum sínum.\n• Bílastæði verða útbúin á grasflötunum við Efrivallaveg neðan við Öxarárfoss\, ásamt því að tjaldsvæðið á Syðri-Leirum\, sunnan þjónustumiðstöðvarinnar verður nýtt sem bílastæði ef þörf krefur. Einnig verða eldri bílastæði frá fyrri hátíðum nýtt vestan gestastofunnar við Hakið.\n• Um helgina verður fallið frá aðskilnaði smærri og stærri hópbifreiða fyrir framan gestastofu þjóðgarðsins og verður þeim öllum vísað á stærra rútubílastæðið. Innra stæðið\, sem nú er nýtt undir smærri hópbifreiðar\, verður nýtt undir almenna fólksbíla. Þess má geta að heimilt er að leggja smærri hópbifreiðum meðfram vegkantinum inn að gestastofu.\n• Frá og með föstudeginum 14. júní verður Valhallarvegi (363) lokað við Silfru og inn að Valhallarreitnum. Mun sú lokun vara alla helgina.\n• Veglokun verður við gatnamót Efrivallavegar (361) og Vallavegar (362) og þar verður umferð stýrt niður í átt að Þingvöllum og Þingvallavatni.\n• Ferðaþjónustuaðilar hafa að venju aðgengi að bílastæðunum P1\, P2 og P3 en líkt og áður var nefnt verður lokað niður að P5 (Valhallarbílastæðinu).\n• Ef bílastæðin á völlunum neðan við Öxarárfoss fyllast þá verður hátíðargestum kleift að leggja á tjaldsvæðinu á Syðri Leirum. Þaðan er um 25 mínútna ganga niður að Valhallarreitnum en einnig verður boðið upp á gjaldfrjálsa akstursþjónustu í hópferðabíl frá Syðri Leirum niður að Flosagjá/Peningagjá. Þaðan tekur aðeins fáeinar mínútur að ganga síðasta spölinn niður að hátíðarsvæðinu.\n• Handhafar P-merkja geta áfram lagt við Flosagjá/Peningagjá.
URL:https://thjodbuningur.is/vidburdur/hatidarhold-thingvollum-80-ara-afmaeli-lydveldisins/
ORGANIZER;CN="%C3%9Ej%C3%B3%C3%B0b%C3%BAningaf%C3%A9lag %C3%8Dslands":MAILTO:postur@thjodbuningur.is
END:VEVENT
END:VCALENDAR